Jólin búin...

Velkomin á bloggið mitt

25.12.2007 22:30:29 / asrun

GLEÐILEGA HÁTÍÐ LJÓSS OG FRIÐAR

FJÖLSKYLDAN Í STEIG ÓSKAR ÖLLUM GLEÐI OG FRIÐAR Á JÓLUM OG FARSÆLDAR Á KOMANDI ÁRI!

» 2 hafa sagt sína skoðun

30.09.2007 20:32:08 / asrun

Sumarið er liðið og fremur votur september líka.


Jæja... þá er Gisela fallin frá. Hún hafði verið ótrúlega hress miðað við hversu krabbameinið var búið að breiða úr sér.
Á fimmtudagskvöldi 23.ág. talaði Óli við hana en svo morguninn eftir hafði henni hrakað allverulega og gat aðeins svarað já og nei þegar var talað við hana. Mamma og pabbi komu og tóku við öllu hér og ég, Óli og krakkarnir drifum okkur austur. Krakkarnir fóru aftur í bæinn seint um kvöldið, Heiðrún var að fara út til NY morguninn eftir og þau gátu þarna kvatt ömmu sína.
Á laugardagsmorgun var Gisela enn verri en það var ekki vitað hve lengi hún yrði þannig svo að við fórum heim, það voru enn gestir væntanlegir á hverjum degi svo að það var frekar erfitt að vera að heiman.
Gisela dó svo aðfararnótt sunnudagsins 26. og við erum óskaplega þakklát fyrir að hún var ekki lengi í því ástandi sem hún var orðin í.
Jarðaförin var ákveðin á laugardeginum viku seinna,... þær eru svo drífandi mágkonur mínar,... og Steinþór og Magga á Brekkum voru beðin um að sjá um erfidrykkjuna.
Þau gerðu það með sóma og ég verð nú að segja að það var ólíkt huggulegra að vera í salnum á Hótel Dyrhólaey en hefði verið í Ketilsstaðaskóla eins og hann er orðinn útlítandi.
Við þökkum öllum sem vottuðu okkur samúð sína, hringdu, sendu kort, skeyti, blóm, færðu okkur kerti og sáu sér fært að vera við jarðaförina, bestu þakkir.

Heiðrún er í New York eins og flestir vita og þeir sem vilja lesa bloggið hennar geta klikkað á linkinn hérna til hliðar. Hún hafði smá heimþrá fyrst en svei mér þá ef hún saknar okkar nokkuð lengur!

Bella pútuskelfir er rosalega ánægð þegar við förum út að gera eitthvað. Hún telur sitt hlutverk að halda fénu frá íbúðarhúsunum og tekur það hlutverk mjög alvarlega.
Hún komst í stórhættu um daginn þegar hún hljóp út og stefndi á dóna sem voru komnar of nálægt húsinu og gerði sig verulega ógnadi! ,,Burt með ykkur druslurnar eða þið hafið verra af”!!!
Eeen hver skrambinn þar komu aðrir dónar frá hlið og gerðu sig tilbúnar til að stanga litla kjúkklingahjartað og mikið var Belluskott fljót að forða sér og koma sér í var. Hehe...
Bella lætur þó ekki deigan síga og stendur sig frábærlega.
Perla tekur þetta hlutverk ekki eins alvarlega en sýnir þó vissa tilburði sem ber að túlka sem viðleitni í þá átt að fæla frá húsinu óvelkomna gesti.

» 5 hafa sagt sína skoðun

06.07.2007 12:52:09 / asrun

Lifandi enn....

Jæja Jónína nú er afmælið þitt búið og tími til að hætta að halda upp á það!

Þar kom að því að maður bloggaði aftur eftir ,,smá” hlé!
Ég gerði þó heiðarlega tilraun í fyrradag en einhverra hluta vegna þá birtist ekki textinn á síðunni sem ég sló inn.

Það hefur margt mjög merkilegt og líka fleira minna merkilegt gerst hér og það sem stendur upp úr núna og telst merkilegt er að litla barnið mitt er að fara til New York í starfsnám! Hún fer á saumastofu west of Fifth Avenue, between 5th and Broadway Manhattan www.saintlaurie.com og það eru engir slordónar sem kaupa sérsaumuðu fötin sín þar. Í síðustu viku voru þeir að sauma á Leonardo DiCaprio og svo hafa þeir verið að sauma á Hinton Battle, Bono, Steve Buscemi, Michael Caine, Patrick Dempsey, John Goodman, Gregory Harrison, William Hurt, Al Pacino, Ron Silver, David Strathairn, Denzel Washington ofl. ásamt því að sauma fyrir sviðið á Brodway söngleikinn Chicago, Jesus Crist Superstar ofl. f. þættina um The Sopranos, Kinsey, The Notebook, Enchanted, Jersey Girl, Master Spy, The Robert Hanssen Story, CBS, Malcolm X, Curtain Call ofl.

Heiðrún er núna að leita að húsnæði sem ku vera frekar dýrt á þessum slóðum,... eiginlega rándýrt! Hún er fyrsti neminn sem þeir taka í þessu fyrirtæki svo henni er mikill sómi sýndur! Mér þykir verst að geta ekki farið með henni þegar hún fer en það er ekki möguleiki þegar allt er fullt af gestum.

Annað skemmtilegt er að Rúna er ástfangin upp fyrir bæði eyru! Hún hitti hann Svenna sinn fyrr á þessu ári og hefur ekki verið söm síðan!
Guðmundur Ragnar er að vinna á Akureyri þessa dagana en kom þó heim um síðustu helgi til að hitta gamla settið og hvutana.
Anna vinnur nótt sem nýtan dag að mastersritgerðinni sinni (nema þegar Heiðrún, Bergdís, Inga og austurrískar vinkonur koma og halda tjald/fjós/bjórskemmtun).
Alexander vinnumaður er mættur á svæðið og í dag kemur líka annar vinnumaður, hann Patrekur Pétursson. Dísa kemur svo líklega á meðan bróðir hennar, Guðmundur Þór og Kalli fara í veiðiferð. Svo er aldrei að vita nema eyjapeyjarnir komi í heimsókn seinna í sumar.

Hvannargengið mitt frá Saga Medica mætti á svæðið á mánudaginn og ef einhverjir vita ekki hverjir það eru þá upplýsist hér með að það er fólkið sem tínir hvönnina í Saga Pro pillurnar sem t.d. stoppa salernisráp á nóttunni og minnka bólgu og verki í gigtveikum liðum, í Voxis hálsmolana sem eru það besta sem ég hef fengið við hósta og í Angelicadjúsinn sem er frábær fyrir ónæmiskerfið. Bjarni verkstjórinn hefur fest á mér matarást svo að þau koma aftur og aftur. Jeiiiii gaman!!!

Hér var haldið ættarmót í júní, rosalega gaman og frábær mæting! Það skyggði þó á gleðina að Gisela var töluvert lasin og endaði svo á spítala eftir þessa annars góðu helgi.
Hún er núna á hjúkrunarheimilinu á Höfn og ég efast ekki um að þar er hugsað vel um hana. Hún var greind með krabbamein í brisi sem er búið að dreifa sér í lifrina, lungun og einhverja eitla.

Nóg í bili, hafið það gott allir!

» 5 hafa sagt sína skoðun

28.03.2007 22:44:40 / asrun

Fjör í dag?

TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLIÐ JÓNÍNA!!! :lol: 

Veðrið þessa dagana er búið að vera frábært!  8) Anna gengur um allt hér í kring og myndar og það eru engar slor myndir!  Kærastinn hennar, frá Spáni, kemur til landsins á morgun og ætlar að vera smá tíma á landinu.  Ég hef séð mynd af honum og hann er alveg jafn myndarlegur og sætur og Anna og ef hann er jafn ágætur og góð manneskja og hún er þá er hún aldeilis í góðum málum því hún er sannarlega vönduð og góð stúlka. :D 

Það er vandlifað í þessum heimi!  Það er svo mikil ólga hér úti í sveit að maður þorir ekki að nefna neitt sem heitir K-skóli eða sameining u-félaga.  :$ 

Innan um visst fólk má ekki hafa skoðun og að standa með sinni skoðun sei, sei, nei, nei, nei og fussum svei,... vond manneskja!  :evil:  Og þar sem ég hef nóg að gera þessa dagana þá ætla ég ekki að hætta mér meira í þessa umræðu meira en orðið er. 

EEEN......  :D ÞEIR SEM VILJA NOTA SÍÐUNA MÍNA TIL AÐ KOMMENTA NAFNLAUST UM HVAÐ SEM ÞEIR VILJA ,,BE MY GUEST”!!! 8|ÞAÐ ER AÐ VÍSU FREKAR HEIGULSLEGT AÐ ÞORA EKKI AÐ KOMA FRAM UNDIR NAFNI  :haha:  EN SKÍTT MEÐ ÞAÐ,...   AUSIÐ ÚR YKKUR UM HVAÐ EINA SEM YKKUR LIGGUR Á HJARTA!!! :D SPARIÐ EKKI STÓRU ORÐIN!  :klikk:  HELLIÐ ÚR YKKUR ÞVÍ SEM HEFUR VERIÐ AÐ SLIGA YKKUR,.... ÉG TALA NÚ EKKI UM YFIR MÉR OG MÍNU ,,SKÍTKASTI” !!! 8|

 Óska lesendum alls hins besta! :D

» 18 hafa sagt sína skoðun

23.03.2007 00:27:32 / asrun

flottur fundur.....

Ég var að koma af aðalfundi UMF Dyrhólaey í Ketilsstaðaskóla og ég er mjög stolt af þeim sem mættu! 

Þarna voru mættir foreldrar sem er ekki sama um börnin sín og eru tilbúin að leggja eitthvað á sig til þess að vinna að velferð þeirra! 

Fólk sem er til í að taka þátt í því sem börnin þeirra eru að gera og vilja styðja þau, ekki bara í orði heldur einnig í verki!

Fólk sem greinilega finnst ekki að það geti farið fram á gott íþróttastarf í heimahéraði án þess að það þurfi sjálft  að leggja eitthvað á sig til þess að svo geti orðið!  

Það voru verulega líflegar umræður um ,,heit” mál eins og t.d. sameiningu Dyrhólaeyjar og Drangs og um sölu á Ketilsstaðaskóla. 

Mér til mikillar ánægju tjáði fólk sig... og þar á meðal ég auðvitað... því eins og ég hef oft sagt þá er ekki nóg að ræða málin við eldhúsborðið heldur á maður að tjá sig á réttum vettvangi! 

Það tjáðu sig ekki allir, sumir eru meira í því að vita hvað hinum finnst..... ok sama er mér.... en það fólk getur þá ekki sagt eftir á að það hafi ekki haft tækifæri eða vettvang til þess að hafa áhrif! 

Að öðru...  Perla mín er orðin amma!  Fimm hvolpar litu dagsins ljós hjá Gerplu fyrir um sex vikum.  Einn dó en hinir eru ,,sprell alive” og algerar rúsínur. 

Nenni ekki meira núna,  hafið það sem best allir. :D


» 16 hafa sagt sína skoðun

16.03.2007 14:07:26 / asrun

Litlu lömbin mín öll...

 Náttúran lætur ekki að sér hæða og í gærmorgun þegar Óli kom út í fjárhús voru komnar í heiminn tvær lambadrottningar, hressar og sprækar!  :D 

Þetta er nú óvenju snemmt allavega hér á bæ en það er alltaf gaman þegar koma lömb svolítið snemma. 

Hún Heiðrún mín hefur alltaf verið sérstök á margan hátt! Til dæmis þegar hún vaknar á morgnana þá segir hún ekki: ,,góðan daginn, gaman að vera til”! :D (Hún þarf þess eiginlega ekki því henni þykir oftast gaman að vera til)

Neibb hún segir: ,,hvað er í matinn/ er e-ð til að eta/ er e-ð ætilegt til í ískápnum o.s.frv.”! 8|

Það er nú ekki hægt að segja að hún sé að springa af spiki heldur er hún ótrúlega spræk og fitt enda ekki mikið fyrir að sitja á rassinum hreyfingarlaus!

Núna ætlar hún að koma heim um helgina og það fyrsta sem hún sagði þegar hún hringdi og tilkynnti mér það var: ,,hæ ég kem heim um helgina, hvað verður í matinn í kvöld”????? :$  

Er þetta eðlilegt?  Að þegar hún hugsar um að fara heim til mömmu og pabba þá poppi upp í heilabúið ,,matur” en ekki ,, mikið verður gaman að koma heim og knúsa gamla settið”! :frown: 

 Ég veit ekki hvort Rúna og Guðmundur eru haldin þessum sama kvilla en ef svo er þá fara þau betur með það og það er ekki eins augljóst! :S  

Mig dreymdi tengdaforeldra mína í nótt.  :|

Í draumaráðningabókinni minni stendur um það að dreyma tengdamóður sína: ,,Dreymi þig tengdamóður þína mun betri vinátta brátt takast með þér og einhverjum þér tengdum eða skyldum en áður.  Að minnsta kosti mun fyrnast yfir gamalt deiluefni og allt falla í ljúfa löð. :D

Um það að dreyma tengdaföður sinn segir: ,,Að dreyma tengdaföður sinn dauðan eða lifandi , er slæmur draumur.  Ógni hann þér eða sýni reiðivott máttu búast við hinu versta”.  :$  

Mig dreymdi líka að tvær slöngur bitu mig í handlegginn, önnur fastar en hin!  SLANGA.: ,,Ef þig dreymir slöngur eða höggorma er það þér merki um mikla hættu, einkum ef þeir bíta þig, oft í sambandi við óvini sem vilja eyðilegggja þig”. :klikk: 

Þetta eru nú uppörvandi draumar finnst ykkur ekki? 8|  

Að öðru.   Heiðrún svífur um á bleiku skýi núna þ.e. á hvítri Mazda 3 árg. ´06.  Hún er að rifna af hamingju með nýja bílinn sinn og að því er ég best veit er Jónína Þórarinsdóttir í sama ástandi yfir nýja bílnum sínum. 

Svo gott fólk,...  ef þið sjáið tvær dömur á ferð með bros út að eyrum svo það lítur út fyrir að vera að ná hringinn og svona frekar svífandi en gangandi þá eru það trúlega þessar skvísur. :haha: 

Var ég nokkuð búin að segja að Anna fra Norge er mætt á svæðið.  Haraldur hún á kærasta þó hann sé staddur í Noregi svo engar hundakúnstir!  Hehe... :S 

Anna virðist vera afar ljúf og góð stúlka og spurning hvort dætur mínar ná að kenna henni að djamma og djúsa eins og Íslendingur  (þeim tókst það að sögn með Lindu, vinir hennar fullyrða það allavega) eða hvort hennar góða uppeldi frá Norge heldur? :klikk:

Jæja ætli ég verði ekki að fara að baka og elda úr því að afkvæmin eru á leiðinni heim svo maður standi undir væntingum!  Hafi það allir sem allra best... :D


» 3 hafa sagt sína skoðun

11.03.2007 21:18:36 / asrun

Oprah er frábær og ég játa fúslega að ég er einlægur aðdáandi.

Blogg 11.03.07 

Góðan daginn og gleðileg jól! :D

Eru ekki allir í stuði???   Æj,æj það var leiðinlegt!   Jæja ég er alveg ágætlega stemmd í dag,.. að vísu ferlega bólgin á fótunum en það lagast örugglega og ég er eiginlega upptendruð eftir að hafa horft á Oprah og vona að það séu það fleiri!

Fyrirgefning er málið! 

Að fyrirgefa sjálfum sér,..trúlega mikilvægast og öðrum sem hafa gert eitthvað á hluta manns.  Segja bless við fortíðina og hello beib við framtíðinni en fagna nútíðinni allra mest og lifa lífinu lifandi!Jamm það er málið. 


» 3 hafa sagt sína skoðun

19.02.2007 23:10:31 / asrun

Dagarnir fljúga frá manni....

 Ég lofaði Heiðrúnu  að ég mundi blogga í dag og ég reyni alltaf að halda þau loforð sem ég gef svo hér kemur það!  :)

Undanfari þorrablótshelgarinnar voru kröfur, kröfur, kröfur!!!!!8|        Er það skylda að standa undir ofurkröfum fullorðinna afkvæma? :evil:  Jæja það vaaar komið til móts við nokkrar af þeim ótrúlegu kröfum sem settar voru fram fyrir helgina en maður verður nú að draga línuna einhver staðar og það er alls ekki hollt fyrir Pínsluna að allt sé látið eftir henni! :haha:  

Jónína ákvað að taka óvænta sveiflu af þjóðvegi 1 á leiðinni á blótið og á meðan hún beið eftir að við Óli kæmum og hirtum upp  hana og viðhengið hennar, fengu þau skjól í bíl eins umtalaðasta fyrrum þingmans landsins sem var á leiðinni á annað blót í grendinni.             

Af myndum teknum á Ketilsstaðablóti má sjá að ,,viðhengið” sló í gegn og grét hann fögrum tárum (næstum því) yfir að koma ekki líka núna um helgina í okkar frábæru sveit með Guðmundi, Heiðrúnu og Jónínu.  :D 

Bergdís, Antonio, Jónína og Heiðrún skemmtu sér svo á sunnudeginum í þynnkunni á snjósleða eins og vitleysingar en aumingja Adam hafði ekki heilsu....  ojojoj...  

Þvílíkur friður sem lagðist yfir byggð og ból þegar þessi líður hvarf á braut.......amen, haaalehlújaaaaa!!!!!!:$   Jæja.... ok þau eru yndisleg það verð ég að viðurkenna og ekki  eru rólegheitin að drepa mann á meðan þessir fjörkálfar eru á svæðinu.  :S  

Eftirköstin létu síðan ekki á sér standa... ég var út úr heiminum í þrjá sólarhringa á eftir!!!   Nema það hafi verið flensa..... ?8)   Þegar ég hafði upp úr rúminu dró ég Óla með mér á námskeið og reyni enginn að segja að ég sé námskeiðasjúk........ því það væri algert öfugmæli! :haha:

Við Óli skruppum í bæinn í síðustu viku og ætlum bráðum aftur því nú er gamla settið foreldrar mínir að fara að flytja í nýja húsið!!!  Geri aðrir betur!!!!!!    Þau verða örugglega aldrei almennilegir gamlingjar miðað við orku og áhugasvið!!! 

Núna um helgina heiðraði ungdómurinn okkur svo aftur með nærveru sinni og aftur ,,kröfur, kröfur”!     Helgin einkenndist af bollum, áti, útlendingum, nýjum innréttingum og fleira flottu dóti!  Það er svo gaman að versla... jíbbíííí gaman!!!  

Núna eru aðrir útlendingar á svæðinu og verða fleiri á næstunnii.        Jæja nóg í bili, verð að fara að plana næsta námskeið hehe...:lol:


» 5 hafa sagt sína skoðun

19.01.2007 17:13:54 / asrun

það var komin tími á blogg...

 

 :D



Stundum er ég svo glöð í hjartanu. Það er ekki eins og oftast svona venjuleg gleði,....heldur ólýsanleg hljóðlát gleði sem dreifist frá hjartanu um allan kroppinn og veldur því að hárin á handleggjunum rísa og sælustraumur fer um mann.

Ég fann fyrir svona hjarta gleði í morgun.  Það sem orsakaði gleðina voru fregnir af umtalsverðum framförum hjá ungum manni sem hefur verið að koma í Bowen.  :D

Það er svo merkilegt við Bowenið að fyrir fram veit maður ekki hvað lagast og hvað ekki! Stundum lagast allt annað en það sem maður bjóst við og stundum uppgötvar fólk að verkur sem það hafði haft í laaaangan tíma og var orðinn svona hluti af lífinu,.... er allt í einu horfinn og svei mér þá að það hafi nokkuð tekið nákvæmlega eftir því hvenær hann hvarf!!! ;)

Líkaminn er svo frábær í því að laga sig sjálfur ef hann fær réttu hvatninguna og fyrir mig er Bowenið að öðrum líkamsmeðferðum ólöstuðum, það besta sem ég hef kynnst! :D

 

Ég hef ekki afrekað mikið það sem af er janúar. Lesið einhver ósköp og flatmagað eins og latur köttur og varla nennt að vera til nema til að lesa, borða og sofa! 8)

Síðasta ár var vægast sagt erilsamt hjá mér og að vera á Reykjalundi og á námskeiði sem krefst heimavinnu ásamt öðru var of mikið fyrir mig. Að fá fólk í Bowen um helgar var eins og frí! Núna skal tíminn skipulagður takk fyrir! Engin ofáætlun og taka tíma í hlutina! 

 

 



Eitt uppgötvaði ég þó í stressinu fyrir jólin og það var að ég var farin að syngja aftur!  Vááá ...ég hef ekki sungið, hvorki heima né annar staðar í nokkur ár. Allt í einu langaði mig að syngja aftur og það var dásamleg tilfinning!  Mamma segir að amma hafi alltaf sungið sama á hverju gekk,... og á því hvað hún söng gátu þau systkinin (9 talsins) alltaf vitað hvernig lá á henni. ;) Ég hef ekki þá gáfu að geta sungið þegar mér líður illa en þegar mér líður vel þá syng ég.  Svo góðir hálsar þá vitið þið það að mér líður betur núna en mér hefur liðið lengi! :D

 

 



Lengi er von á einum og í nótt var franskt par í gistingu sem var á leið austur.   Brrrrrrrrrr... ekki vildi ég vera á ferðalagi um landið núna að óþörfu.  Þau virtust þó mjög vel búin og vel að merkja,... ekki á Yaris eða öðrum smábíl heldur á jeppa svo að þeim hlýtur að verða óhætt. Þau töluðu um að þau langaði að koma aftur að sumri til og þar sem þau búa í Frans verður aldrei svona veður eins og hér á veturna.  Það er örugglega mikið ævintýri að koma frá löndum sunnar á hnettinum og upplifa vetur hér, allavega þegar það er alvöru vetur, ekki eins og  síðustu 2-3 ár.  Þau þyrftu að upplifa smá rafmagnsleysi og brjálað rok ásamt norðurljósum og hundslappadrífu, hehe!

 

 



Það er svo gaman þegar gestir biðja sérstaklega um að vera hjá okkur!  Það þýðir vanalega að einhver hefur mælt með okkur, vinir eða vandamenn sem hafa gist hér áður.  Jibbíjeiiiii gaman!!!! :D

 

 



Um mánaðamótin febrúar-mars kemur vinnukona til okkar. Hún verður í nokkra mánuði og verður auðvitað látin puða ómælt, hehe.  Alexander kemur svo í sumar í einhvern tíma ef áætlanir standast, veit ekki með Dísu... og svo vonandi nokkrir aðrir ungir menn sem vilja vera smá hjá bestu frænku sinni í sumar.

Jæja nóg í bili, hafið það allir sem best!

 

 




» 8 hafa sagt sína skoðun

25.12.2006 18:28:04 / asrun

Notalegheit í faðmi fjölskyldunnar.

 

Þá eru gleðileg jól gengin í garð á þessu heimili.  Það leit ekki vel út með að þau yrðu svo gleðileg um tíma seinnipartinn á Þorláksmessu.  Ég þakka öllum hjartanlega sem hringdu og sýndu umhyggju sína fyrir okkur, það er sannarlega óskemmtileg reynsla að lenda í heimilisbruna og ég þakka bara fyrir að ekki fór verr en það þó gerði.   Við þökkum líka slökkviliðinu í Vík kærlega fyrir komuna og vonumst til að þurfa aldrei aftur að bjóða þeim heim undir sömu kringumstæðum. 

Mín frábæru, vel gefnu og ótrúlega vel upp öldu afkvæmi :D komu heim á föstudagskvöld í yfirhlöðnum bílnum hans Guðmundar. Þau sáu nefnilega um að kaupa jólatréð og flytja það hingað heim ásamt miklu magni af öðrum ónefndum farangri.

Þessi jólin hafa engir túristar látið sjá sig utan 5 manna fjölskyldu frá Spáni sem kom á fimmtudaginn í ,,góða” veðrinu sem var þá.  Það er greinilegt að margir útlendingar sem koma og nema í Háskólanum smá tíma, fá fjölskyldur sínar á eftir sér til að skoða land og þjóð smá áður en þeir fara aftur heim, allavega hafa nokkrir í þannig standi komið og gist hér undanfarið.  Það er þó ekki öll von úti enn um jólatúrista því það er nú bara jóladagur í dag!  ;)

Jæja ég verð víst að fara að hugsa um að koma í lóg öllum þeim ósköpum af jólabakkelsi sem hefur verið að hlaðast upp á bænum, :D takk mamma mín,... jammí loksins get ég líka farið að taka Sörurnar upp úr kistunni.

 Endurtek bestu þakkir til allra sem hringdu, það er notalegt að vita af þeim sem hugsa fallega til okkar, vona að allir hafi það gott um jól og áramót, jólakortin eru á leiðinni, þau voru ekki send fyrr en á laugardagsmorgun.


» 4 hafa sagt sína skoðun

24.12.2006 12:10:23 / asrun

Gleðileg jól!

Gleðileg jól og farsælt komandi ár allir.


» 2 hafa sagt sína skoðun

07.12.2006 22:59:23 / asrun

Kominn í bæinn enn og aftur!

 :S Jæja nú get ég farið að anda léttar. Búið að flytja kynninguna á Brautargengisnámskeiðinu og það gekk mun betur en ég áttir von á og

miðað við stressið sem var í gangi í hópnum, mis mikið þó, gekk flutningurinn ótrúlega vel.  Þá getur maður farið að hugsa aðeins meira um jólin. :D

Prógramið sem ég er í á Reykjalundi gengur vel en óneitanlega er þreytandi að fara í bæinn á mánudögum, koma heim á miðvikudkvöldum, fara í bæinn á fimmtudkvöldum og koma heim á föstudkvöldum.  En nú get ég farið að nota helgarnar til að gera meira en bara læra og vinna við Bowen. Kannski Óli fari að fá smá umhyggju og athygli!

Það er þó eftir einn fimmtudagur á námskeiðinu og það er útskriftin.  Hún verður eftir viku og þá tek ég Óla með mér og meira að segja býð honum út að borða eftir partýið.

Það verður skrítið að geta verið ,,bara” heima þegar Reykjalundurinn er líka afstaðinn eftir allan þvælinginn í allt haust! 8|

Mér til mikillar ánægju er aðsóknin að aukast í Bowenið. Ég hef ekkert auglýst en ég veit að ég á mér ötulan talsmann og kann honum miklar þakkir fyrir. Það er líka ótrúlega gefandi að vita að fólk er að finna mun á sér eftir meðferð og ekki síður þegar krakkar sem fá meðferð finna sjálfir mun á líðan sinni.

Aumingja Bella er ekki svipur hjá sjón núna,... hún var nefnilega í klippingu um daginn!  Æjjj, henni finnst bara ekki gaman að fara í bað en að fá klippingu er hálfu verra en baðið!  Þegar Bella er böðuð þarf Perla alltaf að fylgjast vel með!  Þegar hún er látin niður á gólf eftir baðið fer Perla og hnusar af henni aftan og framan og .......  ég á alltaf von á að hún lyfti löpp og merki sér hana einn góðan veðurdag ef henni líkar ekki lyktin af hárnæringunni!:cry:

Hvað haldiði!!!! Perla er að verða amma!!!!!!! Gerpla sjónvarpsstjarna hitti hundagaur í Borgafirðinum og úr því verða auðvitað ótrúlega flottir hvolpar!

Það eru enn að slæðast inn gestir! Hvað er fólk að þvælast í ókunnu landi um hávetur eins og aular? Það kom einn ungur maður í síðustu viku sem var að hugsa um að ganga kring um Mýrdalsjökul??? Hann var einn á ferð og ég hafði það á tilfinningunni að hann hefði enga hugmynd um hvað væri bjart lengi á daginn þannig að það væri ratljóst en kannski hefur hann haft vasaljós!  Klukkan fimm ætlaði hann að vakna morguninn eftir því hann þyrfti að nota tíman til að skoða sig um???  Það er spurnig þetta með vasaljósið......8|

Jæja kominn háttatími, góða nótt allir.:haha:


» 2 hafa sagt sína skoðun

01.12.2006 16:30:34 / asrun

Eiga sumir meira bágt en aðrir?

 

Orðin ,,aumar sálir”  hafar öðlast nýja merkingu í mínum huga. Framvegis verða þessi orð órjúfanlega tengd Ernu Ólafsdóttur ábúanda að Eystri-Pétursey, Jóhönnu Jónsdóttur Nykhól, Elínu Einarsdóttur Sólheimatungu, Kolbrúnu Hjörleifsdóttur Ketilsstaðaskóla, Sæunni Sigurlaugsdóttur Skeiðflöt og Eyrúnu Sæmundsdóttur Sólheimahjáleigu.

 

Ég bar vissa virðingu fyrir þessum konum,... sumum meiri en öðrum,... áður en ég kynntist þeim betur í Geislabrotsmálinu. Eftir að ,,málið” kom upp missti ég þá virðingu,... en í dag finn ég, við skulum segja; snert af fyrirlitningu.  Hversu lágt er hægt að leggjast?

Þær geta greinilega ekki sætt sig við að hafa tapað málinu og reyna að gera mér og þar með auðvitað Óla líka, allt til bölvunnar sem þær geta. 

Núna þykjast þær hafa selt Birni Friðriksyni mági Ernu það sem ,,fylgir og fylgja ber” leiservélinni svo að þær þurfi ekki að skila því.  Jæja til hamingju Björn gaman fyrir þig að kaupa þýfi!  Æ, æ, æ, Erna það var þetta með ,,ógeðslega innrætið”!!!

Jæja,... ég er allavega búin að kæra þjófnaðinn og ætli þessar eðal dömur hafi búist við því?

Allt hafa þær gert sem þær hafa getað til þess að sjá til þess að ég fái ekki neitt af því sem þær voru dæmdar til að borga fyrir Héraðsdómi  Suðurlands.

Ég segi bara ekki annað en það að mikið er hægt að eiga bágt!

:D

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

18.11.2006 00:19:04 / asrun

Snjóaði í Mýrdalnum?

Það er nú eiginlega ekki hægt að segja að ég sé dugleg að blogga, svei mér þá! 8)

Það verður þó að segjast mér til afsökunar að ég hef haft frekar mikið að gera og þegar ég er búin að sitja hálfan daginn við skriftir og lærdóm í tölvunni þá bara slekk ég og fer að gera e-ð annað áður en mér dettur í hug að blogga  og þá nenni ég ekki að kveikja aftur.  Ekki það að ég hafi ekkert að segja! :D

Ætli það viti það ekki flestir núna að ég keypti leiservélina af Geislabroti á uppboði og uppboðið hljóðaði upp á ,,vélina allt sem henni fylgir og fylgja ber”.  Síðan þegar við komum að sækja vélina, neituðu Erna og Jóhanna að afhenda ,,það sem fylgja ber” og nú stefnir í að það verði annað uppboð fljótlega á því sem ,,fylgja ber” og fleiru sem ég bætti við.  Fyrirtækið skuldar mér enn 1,5 millj. og þær hafa ekki borgað krónu af því sem þær voru dæmdar til að borga.  Það verður fróðlegt að sjá hvernig þetta fer allt saman.  Kannski ég komi til með að birta þessa sögu fyrr en seinna, hver veit?  :haha:

Það er allavega alveg ástæða til þess að vara fólk við því að halda að það geti treyst öðrum þegar peningar og sambönd eru annars vegar og það virðist líka vera áhrifamikið að sleikja sig upp við rétta fólkið eins og t.d. þá sem vinna fyrir sjóði og hafa það hlutverk að útdeila peningum.  Mínir dyggu lesendur geta kannski látið sig hlakka til að lesa um allan subbuskapinn innan tíðar ef ég lek gúmmelaðinu í blöðin hehe.

Ég er ekki alveg komin á það stig að vorkenna dömunum en samt finn ég til vissrar samúðar því þær eru núna búnar að afhjúpa sitt eigið innræti, allavega fyrir mér og mínum. 

Ég er að skrifa um Geislabrotsmálið allt frá a-ö og undanskil ekkert.  Það er eiginlega sálarfrelsandi að skrifa svona um málið. Strax í upphafi komu fram merki sem hefðu átt að vekja hjá mér tortryggni en ég hef yfirleitt  trúað því besta um fólk að óreyndu og vil ekki trúa öðru en því besta um fólk fyrr en ég rek mig á annað.  Það má segja að ég hafi þurft að reka mig full harkalega á áður en ég trúði staðreyndum í þessu máli. :$

Óla gengur vel að innrétta svínahúsið, þar ætlum við að hafa vélina og við stefnum að því að byrja að vinna við hana eins fljótt og hægt er eftir áramót. Gvööööð hvað það  verður gaman!!!!!!!! ;)

Krökkunum mínum gengur vel í skóla og vinnu og mikið er það gott.

Mamma, pabbi, Kalli og Berglind fara til Boston eftir nokkra daga, ojjj hvað ég öfunda þau.  En ég kæmist ekki hvort sem er og það slær á öfundarverkina.  Það verður örugglega gaman hjá þeim og ekki vanþörf á að þau skipti um umhverfi, ég held að þau séu öll að vinna yfir sig svei mér þá! Þau koma vonandi til baka spræk eins og lömb á vori. Síðan fara mamma, pabbi og Hlöðver til Danmerkur rétt fyrir jól og koma aftur milli jóla og nýárs.  Sólrún er í skýunum yfir því og örugglega krakkarnir hennar líka.  Við erum aftur á móti boðin í kalkúna hjá mömmu á gamlárskvöld eins og vanalega og það er sko ekkert slor skal ég segja ykkur.

Ég hitti talnaspeking um daginn og hann sagði að ég væri ,,stórmenni” hvort sem þið trúið því eða ekki!  Hann sagði ýmislegt fleira sem ég held fyrir mig hehe og enn og aftur fæ ég að heyra að ég sé einfaldlega frábær! Ég held að fyrir rest þá fari ég að trúa því!:D

Jæja það er farið að snjóa og tími til kominn að hætta. Hafið það allir sem best.


» 6 hafa sagt sína skoðun

27.10.2006 17:41:23 / asrun

Eru að koma jól?

Það er að koma smá jólafílingur í mig. :$  Ég er að hugsa um hvort ég á ekki að fara að spila jólalögin? 8)  Mamma er búin að baka tvær sortir af jólakökum og Sólrún eina, allavega, :D veðrið er búið að koma manni í skilning um að það er kominn vetur, já, já, ,,jólin löngu liðin"  ;) en nú eru þau að koma aftur og það er svo gaman.  :haha: Ég veit að ég er eins og lítill krakki þegar ég hugsa um jólin og allt sem því fylgir en þið verðið bara að taka því.  Það er svo gaman að hugsa um hvað maður ætlar að gefa þessum.... og hinum.... og hvað ætli ég fái?......:o ok það er of langt til að fara að hugsa um hvað ég fái en ekki hvað ég ætla að gefa hinum og þessum!  :D

Ég hef ekki saumað jólaföt í manna minnum en nú er ég að hugsa um hvort ég á að sauma eða prjóna jólakjólana á Perlu og Bellu hehe..... og bleikir skulu þeir verða.  jæja ekki meira í bili það er fólk að koma í Bowen, hafið það gott allir.:D


» 6 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 7
Dagsetning
10. febrúar 2012